Lýsing
Prufutíminn tekur einungis um 60-75 mínútur. Í hann mæta yfirleitt 4-12 manns í einu. Hann hefst á 10-15 mínútna kynningu og svo eru allir leiddir í gegnum OsteoStrong tækin. Ekki er þörf á að koma í sérstökum æfingafötum, bara eins og þér hentar. Við gerum æfingarnar á sokkunum. Í lokin er farið yfir verðskrá og stundaskrá.
Þeir sem eru með muscular dystrophy sjúkdóminn ættu ekki að stunda OsteoStrong ásamt þeim sem eru á þriðja hluta meðgöngu og þeim sem eru með mjög háan blóðþrýsting og ekki á lyfjum. Einnig þeir sem eru með opið/nýtt kviðslit. OsteoStrong gæti líka verið varhugaverður kostur fyrir þá sem eru með mjög mörg (8-10) samfallsbrot í hrygg.