VIÐSKIPTASKILMÁLAR
VIÐSKIPTASKILMÁLAR OSTEOSTRONG (BIOHACK EHF.)
Gilda frá: 12.10.2026
1. Upplýsingar um söluaðila
Nafn fyrirtækis: Biohack ehf. (starfar undir vörumerkinu OsteoStrong)
Kennitala: 541217-2740
Lögheimili: Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi
Sími: 419-9200
Netfang: mottaka@osteostrong.is
2. Gildissvið og samningssamband
Skilmálar þessir gilda um öll kaup á þjónustu, áskriftum, kortum og stökum tímum hjá Biohack ehf. (OsteoStrong), hvort sem kaupin fara fram á vefsvæði félagsins, í Odoo-bókunarkerfinu eða í móttöku á staðnum. Með því að kaupa þjónustu eða skrá sig í áskrift samþykkir viðskiptavinur að vera bundinn af skilmálum þessum.
3. Vörur og þjónusta
OsteoStrong býður upp á 20 mínútna æfingatíma undir handleiðslu þjálfara, ásamt viðbótarþjónustu á borð við notkun á bekkjum með púlsuðum rafsegulbylgjum (PEMF).
Verðskrá og gildistími korta:
Áskrift (34.900 kr./mán.): Með mánaðarlegri áskrift fá meðlimir 4 skipti til afnota í hverjum mánuði. Mögulegt er að segja upp áskrift eftir 3 mánuði en ekki fyrr. Réttur til notkunar hvers mánaðar/greiðslu rennur út 2 mánuðum eftir útgáfu/greiðslu.
12 mánaða kort (359.900 kr. eingreiðsla): 52 skipti. Gildistími er 24 mánuðir.
6 mánaða kort (199.900 kr. eingreiðsla): 26 skipti. Gildistími er 12 mánuðir.
3 mánaða kort (99.900 kr. eingreiðsla): 12 skipti. Gildistími er 6 mánuðir.
Stakur mánuður (54.900 kr.): 4 skipti. Gildistími er 2 mánuðir.
10 skipta kort (149.900 kr.): Gildistími er þrjú ár. Athugið að þetta er lausn sem hentar mjög fáum.
Stakt skipti / Einstaklingsprufutími: 29.900 kr.
Púlsaðar rafsegulbylgjur (bekkir):
Dagleg notkun: 29.900 kr./mán. til viðbótar við aðra áskrift/kort
10 skipta kort: 29.900 kr.
Afslættir: Öryrkjar og einstaklingar 67 ára og eldri fá 5% afslátt af verðskrá.
Hópakynningar/Hópa-prufutímar eru ókeypis.
4. Reglur um kort, framsal og endurgreiðslur
Persónulegur aðgangur: Öll kort, áskriftir og klippikort eru persónuleg og skráð á nafn og kennitölu viðskiptavinar. Framsal, yfirfærsla eða deiling á kortum til þriðja aðila er með öllu óheimil. Engar undanþágur eru gerðar frá þessari reglu.
Gildistími: Hvert kort gildir í tiltekinn tíma sbr. verðskrá. Ónotaðar heimsóknir fyrnast og færast ekki á milli tímabila eftir að gildistími er runninn út.
Engin endurgreiðsla: Seldir kortasamningar, áskriftir og stakir tímar eru EKKI endurgreiddir, hvort sem um er að ræða ónotaða tíma eða breytta persónulega hagi viðskiptavinar, nema kveðið sé á um annað í ófrávíkjanlegum neytendalögum.
5. Áskriftarskilmálar, binding og uppsögn
Ótímabundinn áskriftarsamningur: Binditími áskriftar er 3 mánuðir. Fyrsta greiðslan er gerð á kaupdegi og miðast tímabilið við kaupdag hvers viðskiptavinar.
Innheimta og mæting: Virk áskrift heldur áfram og gjald er innheimt samkvæmt samningi þar til skrifleg uppsögn berst, óháð mætingu viðskiptavinar.
Uppsögn: Eftir að þrjár greiðslur hafa farið í gegn og 3 mánaða binditíma lýkur má segja upp áskrift hvenær sem er með tölvupósti á mottaka@osteostrong.is. Uppsögn telst ekki staðfest ef skrifleg uppsögn berst ekki. Mikilvægt er að uppsögn berist 10 dögum fyrir áætlaða innheimtu svo hægt sé að ganga vel frá skráningu.
Nýting réttinda: Nýta verður ónotuð réttindi úr áskrift innan 2 mánaða frá greiðsludegi viðkomandi mánaðar.
6. Greiðslur, verðbreytingar og vanskil
Greiðsluþjónusta: Greiðslur fyrir þjónustu fara fram í gegnum greiðslugátt Straums greiðslumiðlunar hf. eða með greiðslu í posa sama fyrirtækis í móttöku. Biohack ehf. geymir ekki kortanúmer á eigin vefþjónum.
Réttur til verðbreytinga: Biohack ehf. áskilur sér rétt til verðbreytinga á áskriftargjöldum í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Hækki Biohack ehf. gjaldið umfram breytingar á vísitölu verður það tilkynnt viðskiptavinum með 30 daga fyrirvara í tölvupósti. Viðskiptavinur getur þá sagt upp áskrift sinni skriflega og fyrirvaralaust.
Vanskil og innheimta: Takist skuldfærsla fyrir mánaðargjaldinu ekki, heldur áskriftin áfram að vera virk og mánaðargjöld halda áfram að stofnast þar til skrifleg uppsögn berst. Ef mánaðargjöld eru ógreidd áskilur Biohack ehf. sér rétt til að loka fyrir bókanir og aðgang viðskiptavinar fyrirvaralaust. Verði skuldin ekki uppgerð áskilur Biohack ehf. sér rétt til að senda ítrekanir og/eða vísa kröfunni í milli- eða löginnheimtu, en í þeim tilvikum bætist innheimtukostnaður við kröfuna í samræmi við innheimtulög nr. 95/2008. Skuldfærsla fyrir fullu mánaðargjaldi er reynd aftur reglulega, en ekki er opnað á aðgang aftur fyrr en fullt uppgjör hefur farið fram.
7. Bókanir, afbókanir og mæting
Bókanir: Bókun og afbókun tíma fer fram í gegnum Odoo-bókunarkerfið eða í móttöku stöðvanna. Meðlimum býðst að eiga fastan bókaðan tíma fram í tímann, en ekki er hægt að ábyrgjast að sami tími haldist óbreyttur allt samningstímabilið.
Afbókanir: Ef viðskiptavinur þarf að afbóka eða færa tíma skal það gert eigi síðar en 24 klst. fyrir bókaðan tíma.
Gleymdir tímar: Sé tími ekki afbókaður með tilsettum fyrirvara áskilur OsteoStrong sér rétt til að draga eitt skipti af korti/áskrift viðkomandi.
8. Umgengni
Umgengisreglur: Viðskiptavinum ber að sýna öðrum gestum og starfsfólki kurteisi og tillitsemi, ganga vel um tæki og búnað og fylgja fyrirmælum þjálfara.
Réttur til brottreksturs: Stórfellt eða ítrekað brot á umgengnisreglum, ótilhlýðileg breytni eða ógnaandi framkoma gegn starfsfólki eða viðskiptavinum veitir starfsmönnum OsteoStrong heimild til að vísa viðkomandi út og/eða rifta samningi án endurgreiðslu.
9. Eðli þjónustu, heilsufar og ábyrgðartakmörkun
Líkamsræktarstöð:
Biohack ehf. starfar sem líkamsræktar- og vellíðunarstöð en ekki sem heilbrigðisstofnun eða heilbrigðisþjónusta.
Frábendingar og heilsufarstakmarkanir:
Æfingar hjá OsteoStrong henta ekki öllum. Einstaklingar í eftirfarandi hópum ættu ekki að stunda æfingar hjá OsteoStrong:
· Konur á þriðja hluta meðgöngu.
· Einstaklingar með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Muscular Dystrophy.
· Einstaklingar með opið kviðslit.
· Einstaklingar með ómeðhöndlaðan eða of háan blóðþrýsting sem ekki tekst að stýra með lyfjum.
· Einstaklingar í hjólastól geta oft nýtt sér þjónustu OsteoStrong ef þeir geta staðið upp og sest í tækin.
· Einstaklingar með gangráð eða önnur rafhlöðudrifin tæki innvortis ættu ekki að nota PEMF bekki í OsteoStrong en fá aðra þjónustu sem hentar betur í staðinn.
Eigin ábyrgð og líkamleg geta: Viðskiptavinir æfa og nýta þjónustuna á eigin ábyrgð. Mikilvægt er að stunda æfingarnar með tilliti til eigin getu og viðbragða líkamans. OsteoStrong mælir með því að iðkendur reyni ekki á sig af fullum krafti fyrst um sinn, heldur auki álagið jafnt og þétt eftir nokkur skipti þegar þeir hafa lært á áhrif æfinganna á líkamann.
Munnlegar upplýsingar og heilsufarsgögn: Viðskiptavinur ber ábyrgð á að meta hvort honum sé óhætt að stunda æfingarnar og skal upplýsa þjálfara munnlega um öll heilsufarsfrávik, frábendingar eða stoðkerfisvanda. Félagið skráir né geymir ekki sjúkraskrár eða formleg heilbrigðisgögn um viðskiptavini.
Ábyrgðartakmörkun: Biohack ehf. og starfsfólk þess bera enga ábyrgð á líkamstjóni, meiðslum eða heilsutjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir, nema hægt sé að rekja það til stórfellds gáleysis eða ásetnings af hálfu fyrirtækisins.
Eigur: Verðmæti og persónulegir munir í húsakynnum stöðvarinnar eru á eigin ábyrgð viðskiptavina.
10. Lögsaga og ágreiningur
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur á milli viðskiptavinar og Biohack ehf. sem ekki reynist unnt að leysa með samkomulagi, er hvorum aðila um sig heimilt að vísa málinu til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
PERSÓNUVERNDARSTEFNA
PERSÓNUVERNDARSTEFNA BIOHACK EHF. (OSTEOSTRONG)
Gildir frá: 12.10.2026
Persónuverndarstefna Biohack ehf. (OsteoStrong) greinir frá því hvernig við söfnum, notum, geymum og verndum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndarreglugerð ESB (GDPR).
1. Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga er:
Biohack ehf. (OsteoStrong)
Kennitala: 541217-2740
Heimilisfang: Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi
Netfang: mottaka@osteostrong.is
Sími: 419-9200
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
- Samskipta- og auðkennisupplýsingar: Nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.
- Kaup- og greiðsluupplýsingar: Kaupsaga, áskriftir og greiðslustaða (gegnum Straum).
- Bókunar- og mætingarsaga: Bókaðir tímar og mætingar í gegnum Odoo.
Árangurssaga og æfingagögn: Biohack ehf. geymir yfirlit og gögn um árangursmarkmið viðskiptavinar (t.d. „bæta jafnvægi“ eða „styrkja hné“) og það hvernig viðskiptavinum hefur gengið að auka styrk sinn út frá þeim mælingum sem verða sjálfkrafa til í hvert skipti sem æfing er framkvæmd hjá OsteoStrong. Gögnin eru varðveitt þótt viðskiptavinur hætti ástundun hjá OsteoStrong svo hann geti komið aftur til æfinga síðar og metið stöðu sína út frá fyrri gögnum. Vilji viðskiptavinur að þessum gögnum sé eytt er nóg að senda skriflega beiðni á mottaka@osteostrong.is.
Athugasemd um heilbrigðisgögn: Biohack ehf. starfar sem líkamsræktarstöð en ekki heilbrigðisstofnun. Við geymum ekki sjúkraskrár eða viðkvæmar heilsufarsupplýsingar í kerfum okkar.
3. Tilgangur og lagastoð vinnslu
Við vinnum persónuupplýsingar þínar í eftirfarandi tilgangi:
Efndir samnings: Til að veita þér þjónustuna, halda utan um bókanir í Odoo, geta veitt upplýsingar um æfingamarkmið/árangur, innheimta greiðslur og halda utan um kortastöðu.
Lögmætir hagsmunir: Til að geyma árangurs- og styrkþróunarsögu þína svo unnt sé að meta stöðu þína ef þú tekur þátt í æfingum að nýju síðar.
Lagaskylda: Til að uppfylla skyldur samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.
Samskipti: Til að senda upplýsingar og áminningar um bókaða tíma, opnunartíma eða skilmála.
4. Vinnsluaðilar og þriðju aðilar
Við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar. Við deilum einungis gögnum með traustum vinnsluaðilum sem koma að rekstri kerfa okkar:
- Straumur greiðslumiðlun hf.: Veitir örugga greiðsluvinnslu fyrir kortaviðskipti.
- Odoo International / Boðleið ehf.: Bókunar-, hýsingar- og viðskiptakerfi félagsins.
- Hugbúnaður OsteoStrong International: Geymir upplýsingar um þróun styrks.
- iGoFigure: Skráningarkerfi sem áður var notað til að bóka tíma og gera kvittanir fyrir viðskiptavini OsteoStrong, en unnið er að því að taka það alfarið úr notkun með hjálp Odoo og Boðleiðar ehf.
Allir vinnsluaðilar okkar eru bundnir af trúnaði og tryggja öryggi gagna í samræmi við íslensk og evrópsk persónuverndarlög.
5. Varðveislutími gagna
Persónuupplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar:
- Bókhaldsgögn og greiðslusaga: Geymd í að minnsta kosti 7 ár í samræmi við bókhaldslög nr. 145/1994.
- Samskipti og almennar bókanir: Geymd á meðan viðskiptasamband er virkt og í hæfilegan tíma á eftir til að sinna fyrirspurnum eða þjónustu.
- Árangurssaga og æfingamarkmið: Geymd að loknu viðskiptasambandi svo unnt sé að meta stöðu og framfarir ef iðkandi snýr aftur til æfinga síðar. Viðskiptavinur getur hvenær sem er lagt fram skriflega beiðni um eyðingu þessara gagna á mottaka@osteostrong.is.
6. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- Fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við geymum um þig.
- Fá rangar eða ófullkomnar upplýsingar leiðréttar.
- Óska eftir eyðingu persónuupplýsinga („rétturinn til að gleymast“), að því marki sem lög heimila.
- Afturkalla samþykki þitt fyrir samskiptum eða markaðsefni hvenær sem er.
Fyrirspurnir og beiðnir um réttindi skal senda á mottaka@osteostrong.is.
7. Kvörtunarréttur
Ef þú telur að vinnsla okkar á persónuupplýsingum stangist á við lög, átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.