Hoppa á efni

Aukinn styrkur

 

Fyrir styrk


Langtíma athugun var gerð á 500 meðlimum OsteoStrong þar sem meðalaldur var 52 ár. Þar kom í ljós að meðlimir sem stunduðu OsteoStrong, 10 mínútna æfing einu sinni í viku, tókst að auka styrk sinn að meðaltali um 73% á fyrsta árinu. Á ári tvö voru þau búin að auka styrkinn sinn um 136%, eftir þriðja árið 201% og fjórða árið 290%!

Þetta þýðir að fólk á öllum aldri nær að bæta styrk sinn. Þeir sem eru sterkastir sjá hægari mun og þeir sem eru minnst sterkir sjá hraðar mun á sér.

OsteoStrong tækin hjálpa okkur að beita vöðunum í sterkustu stöðu og ná að þann hátt að setja mun meira álag á líkamann en við getum við aðrar aðstæður á öruggan hátt. 

OsteoStrong æfingarnar hjálpa okkur að fjölga vöðvaþræðlingum innan vöðvaþráða. Það þýðir að vöðvinn vex í styrk og getu en eykur ekki ummál sitt né þyngd að neinu ráði. Nýlegar rannsóknir gefa í skyn að það séu ekki síst innri vöðvar sem njóta aukins styrks við æfingar OsteoStrong.


 



OsteoStrong er byltingarkennt kerfi sem hjálpar fólki að styrkja vöðva, minnka verki í liðum og stoðkerfi, styrkja bein og auka jafnvægi með góðum árangri. Ástundun tekur stuttan tíma, eða 10 mínútur á viku.


Sigmar Freyr Jónsson er vanur kraftlyftingamaður sem hefur þurft að takast á við mikla verki í líkamanum. Eftir endurhæfingu fór hann í OsteoStrong til þess að komast aftur af stað í æfingar:

„Með því að ástunda OsteoStrong er hægt að byggja upp svo mikinn styrk og virkja „motor-unit“ í vöðvunum án þess að þræla þér of mikið út. Næstum eins og svindl til þess að hafa meiri orku til að gera aðrar æfingar. Maður finnur það í líkamanum dagana eftir æfingarnar að maður er að styrkjast og byggjast upp„

 Viðtal við Sigmar Frey Jónsson

​


Verðskrá

Veldu tímabundið kort með eingreiðslu eða reglulega áskrift

Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.