Hoppa á efni

Bætt líkamsstaða

Þeir sem þurfa að eyða miklum tíma við skrifborð, fyrir framan tölvu eða bara í spjaldtölvu finna yfirleitt fyrir að líkamsstaðan þeirra versnar. 

Í æfingum OsteoStrong setja meðlimir mikið álag á bakið í nákvæmri stöðu og byggja þannig upp þá vöðva sem halda okkur uppi og hjálpa fólki við að halda góðri líkamsstöðu alla vikuna. Þetta á jafnt við um unga sem aldna.

Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong býður upp á, fólk á öllum aldri, óháð líkamlegri getu.

Meðlimir geta á von á að minnka verki í baki og liðamótum, lækka langtíma blóðsykur, auka beinþéttni og styrk. Bæta líkamsstöðu, auka jafnvægi og minnka líkur á álagsmeiðslum


Meðlimir OsteoStrong mæta í 10 mínútur einu sinni í viku og auka styrk vöðva, beina, sina og liðbanda umtalsvert. Sérhæfð tæki bjóða notendum að nýta vöðva í hámarks aflstöðu


 „Notendur gera æfingar undir handleiðslu þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkamann,“ segir Svanlaug. „Munurinn á venjulegum líkamsræktartækjum og þessum, er að hreyfingin er örlítil og hefst þar sem útlimirnir eru nær alveg útréttir. Tækin veita mótstöðu sem síeykst, eftir því sem notandinn reynir meira á sig. Það þarf aðeins örstutt átak, eða um 15 sekúndur, fyrir hverja æfingu. Þá hefur miðtaugakerfið fengið upplýsingar um að þörf sé á uppbyggingu og hefst handa við að þétt bein og styrkja vöðva, liðbönd og sinar.“


Má ég koma og prófa?

Endilega“ Við bjóðum upp á fría prufutíma til þess að allir fengið góða kynningu, spurt allra spurninga sem þeim dettur í hug og mátað sig við kerfið. Pruftímarnir eru á miðvikudögum í Ögurhvarfi 2 og fimmtudögum í Hátúni 12. Prufutíminn tekur 60-90 mínútur. Í hann mæta yfirleitt 6-12 manns í einu. Hann hefst á 10-15 mínútna kynningu og svo eru allir leiddir í gegnum OsteoStrong tækin. Ekki er þörf á að koma í sérstökum æfingafötum, bara eins og þér hentar.

Bóka prufutíma

Verðskrá

Veldu tímabundið kort með eingreiðslu eða reglulega áskrift

Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.